Velkomin á síðu Heiðarættarinnar. Þessi síða er ætluð til fróðleiks og skemmtunar hverjum þeim sem tengist Heiðarætt þeirri er kennir sig við Langanes. Hér er rakin saga bæjarins Heiði frá þeim tíma sem hjónin Lárus og Arnþrúður hófu þar búskap. Einnig er rakin saga þeirra hjóna og sömuleiðis barnanna fjórtán og uppeldisonarins Snorra.
|
HeiðiSæmundur Sæmundsson (f. 1847) og kona hans Guðlaug Jónsdóttir frá Eiði (f. 1848) hefja búskap sinn á Heiði þegar Sæmundur tekur við búi af foreldrum sínum. Þau áttu saman níu börn. Fjögur þeirra létust í æsku en það voru Guðlaugur 7 ára, Sæmundur 5 ára, Jón 1 árs og Einar sem fæddur var sama ár og þau létust systkinin. Tvíburastúlkur áttu þau árið 1890 sem fæddust andvana. Þrjú systkinin komust á fullorðinsár en þau voru Þórdís (f. 1876 d. 1945), Arnþrúður (f. 1887 d. 1963) og Bergur (f. 1888 d. 1915). Þessir forfeður okkar hvíla nú allir í Sauðaneskirkjugarði.
Áður en Sæmundur lést skipti hann Heiðarjörðinni á milli systranna Þórdísar og Arnþrúðar þar sem Bergur bróðir þeirra var þá látinn. Þórdís Sæmundsdóttir bjó þá á þeim hluta jarðarinnar sem fékk nafnið Heiðarhöfn ásamt manni sínum Sigurði Guðmundssyni (f. 1884 d. 1968). Þau eignuðust tvær dætur; Guðlaugu (f. 1912 d. 1914) og Berglaugu (f. 1915 d. 2002). Arnþrúður Sæmundsdóttir giftist manni sínum Lárusi Helgasyni þann 5. febrúar árið 1906. Hann var fæddur á Árseli á Langanesi. |