Þórdís Lárusdóttir (Dísa) fæddist á Heiði 7. júní árið 1911. Hún lést 7. Nóvember 2001. Börn hennar eru: Trausti Örn (f. 25.09. 1940) og Heiða (f. 17.07. 1947 d. 01.09. 2009). Þau fæddust bæði á Heiði. Þórdís ólst upp í foreldrahúsum
við öll almenn sveitastörf þess tíma. Hún stundaði venjulegt barnaskólanám og
starfaði við heimili og bú foreldra sinna á Heiði til 1950. Þá flutti hún í
Bræðraborg á Þórshöfn, þar sem hún hélt heimili með Jóni Trausta bróður sínum og Heiða dóttir hennar bjó alla tíð hjá þeim þar til árið 1980 að Dísa og Heiða fluttust suður til Reykjavíkur.