Bergþóra Lárusdóttir (Tóta) fæddist á Heiði þann 19. janúar 1915. Hún lést 4. desember 1998. Bergþóra var síðast til heimilis í Víðilundi 24, Akureyri. Bergþóra var gift Jónatani Magnússyni, vélstjóra, f. 26.06. 1910, d. 26.01. 1966. Börn þeirra: 1) Alda, 2) Magnús, 3) Jóna Þrúður, 4) Sævar, 5) Björgvin Smári.
Tóta fluttist burt úr sveitinni ásamt flestu öðru ungu fólki því þéttbýlið óx þegar líða tók á öldina og möguleikarnir að sjá sér farborða þar urðu stöðugt fleiri. Leiðin lá til Akureyrar þar sem hún kynntist Jónatani manni sínum. Þau áttu sér síðan sitt heimili að Norðurgötu 26 þar sem Tóta bjó lengstum. Hjá þeim bjuggu einnig foreldrar Jónatans, þau Magnús Oddsson og Ólöf Árnadóttir. Jónatan var vélstjóri og oftast úti á sjó svo það kom í Tótu hlut að sjá um heimili og börn en jafnframt vann hún iðulega utan heimilis. Oftast bauð lífið upp á góðar stundir eins og þegar hún fór í pelsinn og á Geysisball, en Jónatan söng með karlakórnum Geysi. Tótu er lýst sem sterkri konu. Dugnaðurinn, krafturinn og atorkan einkenndi hana alla tíð ásamt góðri kímnigáfu sem oft hjálpaði henni í gegnum erfiða tíma. Langar sjúkralegur barna og maka hafa örugglega tekið mikið á þó hún léti það aldrei sjást. Hún missti svo mann sinn langt fyrir aldur fram. Hin síðustu æviár bjó Tóta í þjónustuíbúð aldraðra við Víðilund á Akureyri.