Lára Lárusdóttir var fædd á Heiði þann 12. desember 1908. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 8. apríl 1997.
Árið 1930 giftist Lára Jóhanni Snæbirni Snæbjörnssyni húsasmíðameistara, (f. 02. 09.1902, d. 02.09. 1978), frá Búðanesi í Hörgárdal. Foreldrar hans voru Jóhanna Jónasdóttir og Snæbjörn Björnsson, seinna búsettur á Akureyri. Lára og Jóhann eignuðust 11 börn. Þau eru 1) Erla, f. 13.11. 1930 d. 23.06. 2012, 2) Bragi, f. 07.10. 1931, 3) Arnþrúður Heiðrún, f. 15.12. 1932, d. 21.03. 1990, 4) Baldur, f. 18.07. 1934, 5) Hörður, f. 18. júlí 1934, d. 28.10. 2012, 6) Birna, f. 26.09. 1938, 7) Hermann, f. 25.09. 1941, 8) Sigrún, f. 15.12. 1942, 9) Snorri, f. 22.03. 1947, 10) Lárus, f. 11.08. 1948, 11) Trausti, f. 12.05. 1951.
Lára og Jóhann settust að á Þórshöfn, þar sem þau reistu sér hús. Starfsvettvangur Láru var heimilið og uppeldi barna. Löngum annaðist hún heimilisreksturinn ein á þrengingartímum fjórða áratugarins þegar Jóhann Snæbjörn fékk vinnu við bryggju- og vitasmíði á vegum Vita- og hafnarmálastofnunar og neyddist til að vera langdvölum að heiman. Í lok seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1946 fluttu Lára og Jóhann búferlum til Borgarness, þar sem þau bjuggu til æviloka, lengst af í einu elsta húsi bæjarins á Brákarbraut 3, en síðar á Skallagrímsgötu 1. Þegar um hægðist við heimilishaldið eða nauðsyn krafði stundaði Lára vinnu utan heimilisins, svo sem í sláturhúsi KBB og á prjónastofu. Flestir afkomendur Láru og Jóhanns hafa sest að í Borgarnesi, en einnig á höfuðborgarsvæðinu og norðanverðum Vestfjörðum.